Ekkert eldhús í nýjum skóla í reykjavík - brot á grunnskólalögum

Skólayfirvöld í Dalskóla í Reykjavík hafa tilkynnt foreldrum að skólinn muni ekki geta haft skólamáltíðir fyrir nemendur sem munu sækja skólann þar í haust. Munu því nemendur þurfa að koma með nesti fyrir alla daga Kom þetta fram á kynningarfundi hjá skólanum. Komið hefur fram í fjölmiðlum að ekki hafi verið reiknað með eldhúsi í hönnun á skólanum, en þær upplýsingar virðast ekki vera réttar. Áætlað er að framkvæmdir á eldhúsinu ljúki í byrjun árs 2020, en áætluð afhending á húsnæði átti að vera í ágúst næstkomandi.

Í samtali við Hringbraut sagði Indró Indriði Candi, arkitekt hjá VA arkitektum að alltaf hafi verið áætlað að eldhús myndi vera í skólanum. Segir hann ástæðuna fyrir því að þessari töf sé vegna þess hversu seint einn verktaki verksins hafi byrjað á verkinu. Verktakafyrirtækið Munck á Íslandi sá um alla steypuvinnu við húsið. Segir Indró að verktakinn muni þurfa greiða dagsektir vegna þessara tafa sem munu getað hljóðað upp á margar milljónir króna. 

Samkvæmt grunnskólalögum ber borginni skylda að bjóða nemendum sínum upp á mat í hádegi á hverjum degi. Ekki er ljóst hvort Reykjavíkurborg geti framfylgt þessum lögum þegar kemur að Dalskóla, en samkvæmt heimildum Hringbrautar er verið að vinna að því að koma með tilbúnar máltíðir í skólann.

Hér að neðan má sjá teikningar að skólanum.

\"\"