Allir flagsmenn í VR, aðildarfélögum Landssambands ísl. verzlunarmanna og Flóabandalagsins hafa nú verið boðaðir til atkvæðagreiðslu um verkföll á félagssvæðum sínum, en innan Flóabandalagsins eru Efling, Hlíf og VSFK, eða svo til allt verkafólk í og við Reykjavík. Verði verkföll samþykkt hefjast aðgerðir fimmtudaginn 28. maí.
Í sameiginlegri tilkynningu kemur fram að félögin hafi undanfarna mánuði reynt að ná sátt við atvinnurekendur um grundvöll nýrra kjarasamninga en árangurinn hafi verið rýr. Öll stéttarfélögin hafi vísað deilum sínum til ríkissáttasemjara þann 17. apríl síðastliðinn. Þrátt fyrir milligöngu hans hafi viðræður reynst árangurslausar og hafi þeim öllum slitið undir lok apríl.
„Ákvörðun um vinnustöðvun er ekki auðveld og er verkfallsvopninu aldrei beitt nema í ítrustu neyð. En viðbrögð atvinnurekenda gagnvart sanngjörnum kröfum okkar eru slík að við eigum engra annarra kosta völ. Atvinnurekendur hafa ekki sýnt vilja til að koma viðræðum í þann farveg að þær skili árangri. Þær aðgerðir sem við greiðum nú atkvæði um eru þannig eina leið okkar til að knýja á um breytingar,“ segir í tilkynningu.