Ekkert annað en mannvonska: „nú er ég ekki lengur sæll og glaður - nú skammast ég mín“

Stöðugur fréttaflutningur af börnum sem á að henda á landi hefur dunið á þjóðinni síðustu daga. Hefur ríkisstjórnin verið harðlega gagnrýnd. Í gær var greint frá því að afganskir feðgar hefðu leitað á Barnaspítala Hringsins vegna kvíða annars drengjanna. Í dag voru sagðar fréttir af því að senda ætti nemanda í Hagaskóla til Grikklands en barnið hefur aðlagast Íslandi og stendur sig vel í námi.

Eiríkur Rögnvaldsson, Prófessor emeritus í íslenskri málfræði er afar ósáttur við ákvarðanir stjórnvalda síðustu daga en hann hafði bundið miklar vonir við Katrínu Jakobsdóttur og Vinstri græna. Eiríkur segir:

„Sat úti í sólinni sæll og glaður. En svo fór ég að lesa fréttirnar og nú er ég ekki lengur sæll og glaður. Nú skammast ég mín fyrir íslensk stjórnvöld.“

Þá bætir Eiríkur við: „Þetta er ekkert annað en mannvonska. Það getur vel verið að þetta sé samkvæmt lögum en þá eru lögin bara óréttlát og röng. Engir alþjóðasamningar skylda okkur til að senda fólk úr landi. Okkur vantar fólk - við erum alltof fá. Þessir drengir eru öruggir og ánægðir hér, eru að læra íslensku, og geta orðið nýtir Íslendingar. En við erum að brjóta þá niður, eyðileggja framtíð þeirra. Erum við virkilega ekkert betri en Trump?“