Svínin: ekkert annað en dýraníð

Gyltur á íslenskum svínabúum eru í sumum tilfellum hafðar á svo þröngum básum að þær geta ekki rétt úr fótunum. Þetta sýna myndir sem fréttastofa Rúv hefur birt og voru teknar þegar Matvælastofnun gerði úttekt á íslenskum svínabúum í fyrra.

„Það er alveg augljóst að þetta brýtur lög um velferð dýra,“ sagði dýralæknir hjá Matvælastofnun um myndirnar sem fréttastofa birti í kvöldfréttum sjónvarps í gærkvöld. Sigmar Guðmundsson spurði á Rúv í morgun fulltrúa kerfisins hvort kalla mætti aðbúnaðinn dýraníð og var því játað.

Rúv hefur einnig birt fréttir um bruna á fótleggjum kjúklinga sem vegna óþrifa og þrengsla hljóta sár í kjúklingabúum. Mikil reiði hefur gosið upp á samfélagsmiðlum og víðar vegna þess aðbúnaðar sem dýr á íslenskum býlum búa í sumum tilfellum við.