Nína Dögg Filippusdóttir leikkona er í ítarlegu forsíðuviðtali í tímaritinu MAN sem kemur út í dag, en það er ritstýrt af Björk Eiðsdóttur, þáttastjórnanda á Hringbraut. Í viðtalinu segist hún m.a. hafa farið reglulega til sálfræðings frá því hún var þrítug. Í fyrsta tímanum segir hún sálfræðinginn hafa spurt hvers vegna hún væri komin og hún hafi svarað að hún vildi ekki verða bitur og brennd um fimmtugt. „Ég held að margir séu hræddir við að taka þetta skref að leita sér andlegrar hjálpar. Það þarf ekkert að vera neitt rosalegt að. Maður veit aldrei hvað lífið ber í skauti sér og getur lent í alls konar áföllum og er aldrei undirbúinn,“ segir Nína m.a. í ítarlegu viðtalinu.
Ekkert að því að leita sér hjálpar
Fleiri fréttir
Nýjast