Í gærkvöldi var ekið á átta ára gamlan dreng í Hafnarfirði þegar hann var að ganga yfir gangbraut. Drengurinn var fluttur á slysadeild til aðhlynningar en talið er að meiðsli hans séu minniháttar. Ökumaðurinn ók burt af slysstað og hefur ekki gefið sig fram. Lögreglan leitar nú ökumannsins, sem ók dökkleitri fólksbifreið.
Þetta er meðal þess sem kom fram í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.
Í tilkynningunni er auk þess greint frá því að maður hafi verið handtekinn í Breiðholti eftir stórfellda líkamsárás. Þolandinn var fluttur á slysadeild í sjúkrabíl en ekki er vitað hversu alvarleg meiðsli hans eru. Gerandi var vistaður í fangaklefa.