Ekið var á gangandi vegfaranda á áttunda tímanum í gærkvöld. Slysið átti sér stað á gatnamótum á Lambhagavegi í Grafarholti, á milli Bauhaus og Mímisbrunns. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu segir slysið alvarlegt.
Lögregla og sjúkraflutningamenn voru kallaðir á vettvang og var umferð um svæðið lokað um stund. Sá slasaði var fluttur með sjúkrabíl á Landspítalann.
Rannsókn slyssins er á frumstigi og segir lögreglan ekki hægt að veita frekari upplýsingar að svo stöddu.