Færeyska söngkonan, Eivör Pálsdóttir mætti til Sigmundar Ernis í viðtalsþættinum Mannamál á Hringbraut í gærkvöld og fór þar yfir farsælan feril sinn sem spannar orðið nærfellt tvo áratugi.
Eivör vakti athygli fyrir söng sinn og persónutöfra strax á unglingsaldri, en hún ólst upp í Götu á Austureyju þar sem tónlistarlífið hefur verið einstaklega kröftugt um langa hríð. Hún var í mörgum kjallaraböndum eins og hún kallar það, en sendi svo frá sér sína fyrstu plötu 17 ára að aldri og eru plöturnar nú orðnir tíu að tölu.
Í viðtalinu, sem hægt er að nálgast hér á hringbraut.is lýsir hún uppvexti sínum í Götu, söngþörfinni og stílnum sem smám saman varð til, samskiptum sínum við foreldrana og tómarúmi sem myndaðist í lífi hennar þegar pabbi hennar féll skyndilega frá eftir að hafa fengið heilahimnubbólgu, en stuttu síðar greindist mamma hennar með krabbamein í maga, en tókst blessunarlega að hafa sigur í þeirri viðureign.
Íslandsárin koma auðvitað við sögu, en tónlistarhjónin Ólöf Kolbrún Harðardóttir og Jón Stefánsson urðu miklir örlagavaldar í lífi hennar og eru henni enn þann dag í dag eins og mamma og pabbi á Íslandi, en henni finnst hún alltaf vera komin heim þegar hún fer til þeirra á Langholtsveginn.
Eirvör ræðir líka ítarlega um lagasmíðar sínar og lífið á sviðinu, en þar vill hún fyrst og fremst eiga samtal við unnendur sýna frammi í sal og gefa sig alla í að túlka lögin sín og texta sem hún semur í skorpum, en þá setjist hún einfaldlega niður snemma morguns og semji allan daginn, hvernig svo sem liggur á henni; þetta sé jú bara eins og hver önnur vinna sem þurfi að mæta til og sinna af alúð og dugnaði.
Viðtalsþátturinn Mannamál er frumsýndur á sunnudagskvöldum klukkan 20:30 og er endursýndur á Hringbraut í dag.