Eitthvað alveg sérstakt við þessa konu

Sirrý og Steingrímur Jón Þórðarson myndatökumaður ,,Banka upp á” hjá lífsglaðri konu í miðborg Reykjavíkur í kvöld. Björgvin Frans sem fær spurninguna: Hver býr hér? veit að það er eitthvað alveg sérstakt við þessa konu og þetta heimili. En það kemur ekki í ljós fyrr en líða fer á þáttinn hvað það er. Á heimilinu má sjá alls kyns tól og tæki sem ekki er víða að finna. Og nú er spurning hvor verður á undan að finna svarið Björgvin Frans eða áhorfendur heima í stofu. Þátturinn er á nýjum útsendingartíma kl. 21 á laugardagskvöldum.

Þátturinn frá því á laugardaginn var, þar sem Svavar Halldórsson fór með Sirrý á heimili Vigdísar Hauksdóttur er kominn á netið og má sjá á hringbraut.is Það vakti mikla athygli að formaður fjárlaganefndar, lögfræðingurinn Vigdís Hauksdóttir, ryksugar á háum hælum, grætur yfir hugljúfum kvikmyndum og hefur myndir af Marilyn Monroe í eldhúsinu til að minna sig á að halda í kvenleikann í karlægum heimi.