Tvö COVID-19 smit greindust innanlands frá því á mánudaginn samkvæmt nýuppfærðum tölum á covid.is, upplýsingavef almannavarna. Eitt smitið er utan sóttkvíar.
Búið er að ná utan um smitið að sögn Hjördísar Guðmundsdóttur, upplýsingafulltrúa almannavarna. Fram hefur komið í fréttum að eitt smitið hafi greinst hjá leikmanni karlaliðs Fylkis í fótbolta og eru liðsfélagar hans í sóttkví. Næsta leik liðsins í efstu deild sem fram átti að fara um helgina hefur verið frestað.
Eitt virkt smit greindist á landamærunum og beðið er niðurstöðu mótefnamælinga í tveimur tilfellum.
Á mánudaginn voru smitin fimm og voru þau fyrstu sem greindust innanlands síðan 15. júní.
Í dag eru 86 í sóttkví, 1.740 í skimunarsóttkví, 24 í einangrun og einn á sjúkrahúsi. Búið er að fullbólusetja 213.186 manns og bólusetning hafin hjá 46.669 til viðbótar.