Eitt prósent Ís­lendinga á undir­skriftar­lista gegn lausa­göngu­banni katta

Um eitt prósent þjóðarinnar, rúmlega 3600 manns, hafa skrifað undir undirskriftarlista þar sem banni á lausagöngu katta á Akureyri er mótmælt.

Hildur Svavarsdóttir er upphafsmanneskja undirsöfnunarinnar en hún segir í textanum að hún vilji sýna bæjarstjórn Akureyrar að um hafi verið að ræða ranga ákvörðun.

Hægt er að skrifa undir hér en óhætt er að segja að málið hafi vakið mikla athygli.

„Í vikunni kom í ljós að bæjarstjórn Akureyrar samþykkti lög um að banna lausagöngu katta á Akureyri árið 2025. Margir hafa tjáð óánægju sína yfir þessari nýju reglugerð, og eru ósammála henni. Okkur er annt um kettina okkar á Akureyri, og þeirra fresli. Þeir gefa bænum okkar lit og gleði með skemmtilega karakterum þeirra. Með því að skrifa undir, sýnir þú að þér er annt um frelsi katta á Akureyri og að þú standir með þeim. Sýnum bæjarstjórn Akureyrar að þetta hafi ekki verið rétt ákvörðun!“ segir á heimasíðunni change.org.