Mikill munur er á trausti Íslendinga til annars vegar Bjarna Benediktssonar og hins vegar Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, formanna Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks, ráðherra og oddamanna ríkisstjórnarinnar.
Fréttablaðið greinir frá því að ný könnun sem blaðið hefur efnt til sýni að flestir sem svöruðu beri mest traust til Bjarna sem fjármálaráðherra eða 40%. 17% segjast bera mest traust til Sigmundar Davíðs forsætisráðherra. Ólöf Nordal skýtur sér á milli þeirra tveggja með ágæta mælingu, 22%.
Spurt var: Hvaða ráðherra berðu mest traust til? Það þýðir að aðeins eitt nafn er nefnt og lítið til skiptanna fyrir suma ráðherra. Aðeins eitt prósent bera mest traust til Sigrúnar Magnúsdóttur umhverfisráðherra. 2% bera mest traust til Illuga Gunnarssonar menntamálaráðherra.
Hér má sjá allt um könnunina á visir.is