Eitt barn er sagt hafa látist í skriðdrekaárás á barnaspítala í Kyiv. Frá þessu greinir miðillinn Kyiv Indipendent á Twitter og hefur eftir úkraínska miðlinum https://tsn.ua
Emma Grahm-Harrison, blaðamaður breska dagblaðsins Guardian deilir færslunni og einnig er greint frá málinu í beinni lýsingu Guardian um innrásina í Úkraínu.
It’s hard — perhaps impossible? — to think of a less strategic/military target than a hospital for kids with cancer.
— Emma Graham-Harrison (@_EmmaGH) February 26, 2022
But the one in Kyiv was just hit. At least one child was killed. https://t.co/fci7HRwjvz
Í frétt Indipendent segir að um sjúkrahús fyrir krabbameinsveik börn sé að ræða. Eitt barn sé látið og tvö særð, auk tveggja særðra fullorðinna.
Haft er eftir sjónarvotti að borgin sé nú undir mikilli stórskotaárás.
Umræddur spítali hefur fengið sérstaka styrki frá Evrópusambandinu meðal annars fyrir tækjabúnaði.
Bandaríska sjónvarpsstöðin CNN hefur eftir Denys Shmyhal, forsætisráðherra Úkraínu að Rússar séu að fremja stríðsglæpi með því að beina spjótum sínum að almennum borgurum.
Í frétt CNN er haft eftir Shmyhal að Rússar ráðist á leikskóla, íbúðarblokkir og hópferðabíla með börn. Þessa glæpi þurfi að fjalla um hjá stríðsglæpadómstólnum.
Myndin með þessari frétt var tekin fyrir utan íbúðablokk við Lobanovsky stræti númar 6 í Kyiv sem varð fyrir stórskotaárás í dag. Nokkrir létust og í fjölmargir þjóðarleiðtogar í Evrópu fordæmdu árásina harðlega.