Undanfarna mánuði hefur verið fjallað um mál Íslendinga sem koma við sögu í Panamaskölunum. Panamskjölin höfðu líkast til einna mest áhrif í stjórnmálum hér á landi.
Tveir kjörnir fulltrúar sögðu af sér og hurfu úr stjórnmálum. Framkvæmdastjóri Framsoknaflokksins vék úr starfi. Kosningum var flýtt. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson sagði af sér sem forsætisráðherra.
Aðrir ráðherrar sögðu þó ekki af sér þrátt fyrir uppljóstranir um tengsl þeirra við aflandsfélög. Annar þeirra er forsætisráðherra Íslands í dag.
Eftirköst Panamaskjalanna risu hæst hér á landi þriðjudaginn 5.apríl 2016 - tveimur dögum eftir fréttaskýringaþátt Reykjavik Media og Kastljóss RÚV með upplýsingum um forsætisráðherra og fleiri stjórnmálamenn. Panamakjölin hafa fallið í skugga annarra mála sem þykja nú sýna enn dekkri hliðar á stjórnmálum á Íslandi en skjöl í Panama.