Eitraður ökumaður yfirbugaður

Vegfarendur yfirbuguðu illa vímaðan ökumann í austurborginni í nótt eftir að hann hafði ekið á móti umferð á Miklubraut og síðar keyrt yfir umferðareyju ig umferðarmerki á mótum Grensásvegar og Bústaðavegar.

Tilkynnt var um ökulag mannsins undir kvöldmat í gær og stafaði mikil hætta af háttalagi hans. Áður en lögreglu bar að garði höfðu veg­far­end­ur yfirvegað manninn, þar á meðal lög­reglumaður á frívakt. Ökumaður­inn hafði eng­in skil­ríki meðferðis og var hann óviðræðuhæf­ur sök­um áfeng­is- og fíkni­efna­vímu.

Þetta kem­ur fram í dag­bók lög­reglu, en að lok­inni sýna­töku var hann vistaður í fanga­geymslu þar til ástand hans hefur lag­ast og hægt verður að ræða við