Í tvo daga hafa verið fluttar fréttir af eitruðu laxasalati. Salat sem er búið að taka úr umferð. Ég hef ekki séð eða heyrt eina einustu frétt sem fjölmiðill hefur unnið. Hins vegar hafa fjölmiðlar keppst við að birta yfirlýsingu.
Í henni segir meðal annars um hugsanlegar afleiðingar þess fyrir það fólk sem hefur þegar borðað eitraða salatið: „Alvarlegri einkenni eru heilahimnubólga í ungbörnum, blóð eitrun og fósturlát ef allt fer á versta veg.“
Nú vantar að vita til dæmis hversu mikið salat var sett í verslanir, hverjar og hvar, hefur fólk veikst, hvað með aðrar vörur frá sama framleiðenda og svo framvegis og svo framvegis.
Þetta er engin frammistaða. Eitraða laxasalatið var framleitt af Mat og mörk á Akureyri.
-sme