Eitrað ættarmót

Formannsslagurinn innan Framsónarflokksins er í hæstu hæðum. Fyrir hádegi fluttu Sigurður Ingi og Sigmundur ræður sínar á flokksþingi í Háskólabíó. Þar fóru tveir svo gjörólíkir menn að það má spyrja hvort þeir rúmist báðir innan eins og sama flokksins, sem er nú bara að svona meðalstærð þótt hann sé nærri hundrað ára.  Þarna er rætt um hvað er að vera framsóknarmaður, eðli framsóknarmanna er einhvern veginn formannsefnunum hugleikið og þeim sem á hlýða. Sigurður Ingi segir ekki framsóknarlegt af Sigmundi að skammta einhliða ræðutíma, 15 mínútur á sig í ræðustól en formaðurinn sjálfur talar í klukkustund. Sigmundur segir að ósérhlífni Framsóknarmanna sé að þakka að hér hafi verið framfarir síðustu öld. Hvorki meira né minna.  

Sigurður Ingi gaf sterklega í skyn í sinni ræðu að flokkurinn yrðu ekki stjórntækur með Sigmund Davíð í brúnni: “Við þurfum að hafa flokk eða flokka sem vilja vinna með okkur. Hvernig er staðan í þeim efnum?”, spurði Sigurðu Ingi í ræðu sem beindist á köflum gegn Sigmundi Davíð og löskuðu orðspori hans.

Það er þó ljóst að ekki eru nein hlýjindi á milli Sigurðar Inga og Sigmundar. Tvær fylkingar sitja nú þetta þing sem formaðurinn lýsti eins og “ættarmóti” í kvöldfréttum í gær. Þetta er þó heldur ansi eitrað ættarmót, það verður að segjast eins og er.