Eiríkur sigurðsson er látinn

Eiríkur Sigurðsson fæddist í Reykjavík 2. október 1933. Hann lést á Hjúkrunarheimilinu Eir 2. maí 2019. Eiríkur var veður- og hafísfræðingur og einn af þeim sem bjó yfir hvað mestri þekkingu um þau fræði hér á landi.

Eiríkur varð stúdent frá menntaskólanum í Reykjavík 1953. Hann hóf síðan nám við Hamborgarháskóla í Þýskalandi og lagði þar fyrst einkum stund á efnafræði. Að svo búnu einbeitti hann sér að öðrum raunvísinda greinum sem urðu grundvöllur að námi í sérgrein hans, veðurfræði. Hann hóf störf á Veðurstofu Íslands í leyfum og hléum frá náminu á tímabilinu 1955-1961 en að námi loknu starfaði hann á Veðurstofunni frá 1963 og allt til sjötugs árið 2003. Ævistarf hans var því á Veðurstofunni, fyrst við veðurspáþjónustu á Keflavíkurflugvelli en lengst af við hafísþjónustu í höfuðstöðvum stofnunarinnar í Reykjavík. Hann vann einnig við úrvinnslu hafísgagna og samdi meðal annars einn síns liðs þrjár viðamiklar skýrslur um hafís við strendur Íslands árin 1968-1971 og var jafnframt meðhöfundur margra viðaminni skýrslna um hafís sem Veðurstofan gaf út um árabil.

\"EiríkurÞór Jakobsson veðurfræðingur og fyrrverandi verkefnisstjóri hafísrannsókna á Veðurstofu Íslands minnist Eiríks en þeir áttu langt og gott farsælt samstarf. Þór segir:

„Á áttunda áratugnum samdi Eiríkur þrjár viðamiklar skýrslur um hafís á íslenskum hafsvæðum árin 1968-1971. Nefnast skýrslurnar „Hafís við strendur Íslands“. Ensk þýðing Eiríks sjálfs fylgdi. Úrvinnsla Eiríks og nákvæm lýsing á ferðum hafíss við Ísland á seinni hluta hins fræga „hafísáratímabils“ bera vitni um aðdáunarverða elju og vandvirkni höfundar. Skýrslurnar munu þykja mikils virði er fram líða stundir.

Á þessum tímum eimdi eftir af nafnleysiskröfu hjá stofnunum. Af hógværð sinni hafði Eiríkur látið sér lynda að vinna hans öll kæmi út í Íslendingasagnastíl án þess að höfundar væri getið. Hann féllst síðar á að bragarbót yrði gerð á og eru nú ritin kennd við höfund í skrám bókasafna. Eiríkur vann síðan ásamt öðrum að árlegum en öllu minni skýrslum um hafís sem Veðurstofan hélt áfram að gefa út.“