Eiríkur gapandi hissa: „greiðendur afnotagjalda ríkisútvarpsins margir þrumulostnir“

Hinn gamalreyndi fjölmiðlamaður, Eiríkur Jónsson, segir á eigin vef, að greiðendur afnotagjalda Ríkisútvarpsins séu margir þrumulostnir. Af hverju er það nú? Jú, þeir fá loks eitthvað fyrir peninginn. Þar að auki fá þeir íslenskt efni.

Pabbahelgar, eftir Nönnu Kristínu Magnúsdóttur, hefur slegið í gegn. En Nanna Kristín leikur, leikstýrir og skrifar handrit! Eiríkur segir:

„Sjónvarpssería um skilnað sem svo margir hafa reynt við, slær við flestu því sem Ríkissjónvarpið hefur reynt að gera til þessa. Og allt á herðum einnar manneskju.“

Þá segir Eiríkur einnig:

„Nanna Kristín Magnúsdóttir kann að leika í kvikmynd, svo áreynslulaust og ótilgert. Hún rennur eins og vatn í gegnum linsuna. Hvernig fór hún að þessu?“