„Hver sá sem segir þér að þriðji orkupakkinn snúist um valdaafsal Íslands til Evrópu, nauðungarsölu á Landsvirkjun, sjálfkrafa samþykki fyrir lagningu sæstrengs eða að það þurfi að virkja hvern einasta bæjarlæk samkvæmt skipunum frá ESB....ER AÐ LJÚGA AÐ ÞÉR!“
Þessu heldur Eiríkur Rafn Rafnsson fram en hann er aðstoðarmaður Pírata. Þetta segir Eiríkur á Facebook. Heitar umræður um orkupakka þrjú hafa átt sér stað undanfarnar vikur. Eiríkur segir Miðflokkinn stunda hræðsluáróður og líta fram hjá staðreyndum. Hann kveðst þó ekki vera að lýsa yfir stuðningi við þriðja orkupakkann, heldur almennt vera að „drulla yfir Miðflokkinn og aðra hræðslupúka. Eiríkur segir:
„Hættum að taka þátt í þjóðernispopúlistahræðsluáróðri Miðflokksins og tökum umræðu á staðreyndum. Að magna upp hræðsluna við eitthvað óskilgreint, flókið og útlenskt er sama taktík og nasistar notuðu við að útrýma gyðingum, sósíalistum, hommum og fötluðum.“