Geirfinnsmálið: nýjar dyr hafa opnast

Dómar voru í dag kl.14 kveðnir upp í Guðmundar-og Geirfinnsmálinu í endurupptöku málsins fyrir Hæstarrétti.  Dómarnir varða fimm af þeim sex sem sak­felld­ir voru árið 1980 í málunum er varða hvarf mannanna og meint manndráp.

Þetta voru mál þeirra Sæv­ars Ciesi­elski, Kristjáns Viðars Viðars­sonar. Tryggva Leifs­sonar, Al­berts Kla­hn Skafta­sonar og Guðjóns Skarp­héðins­sonar. Mál er varðar rangar sakargiftir Erlu Bolla­dóttur var ekki tekið fyrir.

Fimmenningarnir voru allir sýknaðir af fyrri dómum. 

 Odd­geir Ein­ars­son lögmaður Sæv­ars Ciesi­elski og Jón Magnússon lögmaður Tryggva Rúnars Leifssonar hvers dagbækur höfðu mikil áhrif til þess að málið endaði í upptöku fyrir Hæstarrétti mæta til Lindu Blöndal í þættinum 21 í kvöld.

Málinu er ekki lokið með þessum dómi, eru þeir sammála um þótt stórt skref hafi verið tekið. Jón segir að einum dyrum hafði verið lokað en að sama skapi aðrar opnast. Um það voru Jón og Oddgeir á einu máli og meina þá að réttlætanlegt og nauðsynlegt sé að rannsaka hvernig rannsókn málsins var á sínum tíma en dómarnir féllu árið 1980.