\"Eini munurinn á nýju hruni og því síðasta er líklega sá að nú mun almenningur á Íslandi bera mestan skaðann en ekki fjármagnseigendur í Evrópu eins og í síðasta hruni.\"
Þetta segir Thomas Möller í nýjasta pistli sínum á hringbraut.is, en fyrr pistlar hans um þjóðfélagsmál hafa vakið þjóðarathygli. Að þessu sinni óttast hann að “Guð blessi Ísland” ræðan verði endurtekin bráðlega. Rétt sjö ár séu liðin frá hruni og teiknin sem boði annað hrun fylli loftin: \"Ofhitnun og ofþensla eru orð sem við heyrum daglega. Viðvörunarljós blikka allstaðar,\" skrifar hann og segir að framundan séu gríðarleg stóriðjuverkefni sem kalli á mikinn mannafla á sama tíma og atvinnuleysið verði nánast horfið og þúsundir erlendra starfsmanna streymi til landsins í uppsveifluna.
Allt sé að hitna: \"Nýtt fjárlagafrumvarp ýtir undir þensluna að mati Samtaka Atvinnulífsins og búið er að semja um allt að 30% launahækkanir á næstu misserum. Bankarnir eru aftur orðnir of stórir miðað við stærð hagkerfisins. Þeir eru með einn hæsta vaxtamun í Evrópu og of háan rekstrarkostnað að mati nýrrar úttektar Samtaka atvinnulífsins,\" skrifar Thomas og bendir á að það sé eins eins og sveiflur og hrun séu orðin reglubundinn þáttur í íslenska hagkerfinu. Nýleg skýrsla Seðlabankans nefni fleiri tugi upp- og niðursveiflna á síðustu áratugum sem bendi til þess að uppsveifla með hruni séu í raun eðlileg þróun efnahagsmála hér á landi.
\"Gengishrunið frá því að krónan varð sjálfstæður gjaldmiðill er um 99,89%. Meðalverðbólgan frá stríðslokum er um 16,7%. Vextir eru hjá okkur um 6 faldir miðað við nágrannalöndin, verðbólgan er um 10 föld núna og verður þannig næstu 2 til 3 ár að mati Seðlabankans,\" skrifar hann enn og sér ekkert annað en gengisfall og verðbólguskot í kortunum.
\"Á sama tíma eru laun hér á landi hlutfallslega lægri en í nágrannalöndunum,\" skrifar Thomas og bendir á píninguna: \"Almenningur greiðir hæstu vexti af húsnæðislánum í Evrópu og eru vextir nú stærsti kostnaðarliður venjulegrar skuldsettrar íslenskrar meðalfjölskyldu. Óvissu- og verðbólguálag á vexti er um 4-5% að mati greiningaraðila og er óstöðugur gjaldmiðill okkar aðalrót þess vanda.\"
Hann rifjar að lokum upp að gamall skólabróðir hans frá Berlín hafi hringt í hann um daginn og spurt hvort það væri rétt sem hann hefði heyrt að laun á Íslandi væru að hækka um 20-35% á næstu 3 árum: \"Ég sagði honum að það væri satt í aðalatriðum. “Hvernig ætlið þið að vera samkeppnishæf meðan laun eru aðeins að hækka um 1-3% hér úti og verðbólgan vel undir einu prósenti” spurði hann.\"