Einu göngin með heitt og kalt vatn

"Þetta var vikan þegar við Íslendingar kvöddum veturinn og héldum því blákalt fram að komið væri sumar," sagði Karl Ágúst Úlfsson í inngangsorðum sínum í þættinum Helginni á Hringbraut í gærkvöld, en þau orð hans fara víða, enda kaldhæðnin á köflum kúnstug úr munni leikarans þjóðkunna. 


Karl taldi að flestar lúðrasveitir landsins verði rúmfastar fram í næstu viku vegna ofkælingar, en bót í máli væri að nú tækju við sumarflensur í stað vetrarflensa. "Og þetta var vikan þegar lögnin í Vaðlaheiðargöngunum var fullkomnuð, þannig að nú rennur þar bæði heitt og kalt vatn. Óvíst er hvort einhvern tíma verður hægt að aka um göngin, en menn binda vonir við að hægt verði að auglýsa þau í ferðabæklingum sem stærsta frárennslisrör heims. Það er jafnvel útlit fyrir að þessi leki komi til með að kosta ennþá meira en lekinn í innanríkisráðuneytinu á sínum tíma," sagði Karl í háði sínu.


"Og stjórnvöld eru farin að kalla eftir nýrri þjóðarsátt," hélt hann áfram og benti að að sú þjóðarsátt fælist í því að áfram verði hægt að lifa á lægstu launum á Íslandi.


Klippur úr þættinum er að finna hér neðar á forsíðu vefjarins og þáttinn í heild sinni undir sjónvarpsflipanum á hringbraut.is