Einstök örlagasaga önnu margétar

Anna Margrét Grétarsdóttir sest í mjúka stólinn gegnt Sigmundi Erni í þáttaröðinni Örlögin á Hringbraut í kvöld og segir þar alla sögu sína frá því hún var lítill strákur að nafni Ágúst Már í Smáíbúðahverfinu í Reykjavík á sjötta áratug síðustu aldar og þar til hún gat að lokum leiðrétt kyn sitt.

Saga Önnu Margrétar spannar tvo þætti af Örlögunum enda fjallar hún um fimmtíu ára feluleik sem oft og tíðum reyndi svo á manneskjuna að hún var við það að svipta sig lífi, aðframkomin af sektarkennd yfir því að fela leyndarmálið fyrir fólkinu sína og svíkja það í raun og sann. 

Í fyrri þættinum, sem sýndur er í kvöld klukkan 20:30 er sagt frá því þegar hún stóð sjálfa sig að því að laumast í kjóla mömmu sinnar svo enginn sá til þar til hana fór að gruna hvers kyns var. Samt sem áður lokaði hún að sér, hvarf aftar og dýpra inn í skápinn og skellti þar utan á hverjum lásnum af öðrum. 

Anna Margrét er ófeimin við að segja sögu sína hispurslaust og af einlægni og greina þar jafnvel frá smæstu og viðkvæmustu atriðum þegar kemur að samskiptum við nánustu fjölskyldu sína, svo og hvernig aðgerðin fór fram og hvað hún að lokum gerði fyrir hana.

Örlögin eru sem fyrr segir á dagskrá Hringbrautar klukkan 20:30 í kvöld og seinni þátturinn verður sýndur að viku liðinni á sama tíma.