Einstök heimild um þjóðhátíð í eyjum

Heimildarmynd Páls Steingrímssonar kvikmyndagerðarmanns um þjóðhátíðina í Eyjum fyrr og síðar er á dagskrá Hringbrautar í kvöld, en þar er listamaðurinn auðvitað á heimavelli, enda fæddur og uppalinn Eyjapeyji.


Heimildarmyndir Páls, sem sýndar hafa verið á mánudagskvöldum á Hringbraut klukkan 21.00 síðustu vikur hafa notið mikilla vinsælda, enda ber Páll mikla og augljósa virðingu fyrir verkefnum sínum, hvort heldur hann er að fjalla um landið, náttúruna, dýraríkið eða menn og listir. Hringbraut hefur í sínum fórum flest allar heimildarmyndir Páls, sem skipta tugum, og mun sýna þær fram á sumarið og taka svo aftur upp þráðinn á hausti komanda.


Þjóðhátíðin í Eyjum er líklega rómaðasta útihátíð landsmanna og á sér lengri og merkilegri sögu en önnur ámóta mannamót hér á landi. Í mynd sinni sem sýnd verður í kvöld segir Páll okkur sögu hátíðarinnar og sýnir stemninguna sem þar hefur ríkt fyrr og síðar.


Myndin er sem fyrr segir frumsýnd klukkan 21.00 í kvöld.