Eignast börn upp á eigin spýtur

Einstakar mæður. Vissulega eru allar mæður og konur yfirhöfuð einstakar útaf fyrir sig en „einstakar mæður“ er reyndar félag kvenna sem taka þá ákvörðun að eignast barn upp á eigin spýur.

\"\"

Eflaust hugsa nokkrir strax að „það þurfi nú tvo til“ en á tuttugustu öldinni er ekki svo. Tæknin svífur áfram og í heiminum í dag eru fjölskyldur af ýmsum stærðum og toga.

Er það ekki þróun í átt að fordómalausu samfélagi?

 Að eignast barn er stór og mikil ákvörðun, pör hætta á getnaðarvörn og ákveða „leyfa því að koma“. Svoleiðis gengur það ekki alltaf fyrir sig. Því tölur sýna að 1 af hverjum 3 gagnkynhneigðum pörum glímir við ófrjósemisvanda og svo auðvitað samkynhneigð pör og einstæðar konur. Það eru þar af leiðandi fleiri en mann grunar sem þurfa að leita sér aðstoðar við barneignir. 

\"\"

 

Árið 2008 var það fyrst leyft á íslandi að einstæð kona mætti fara í tæknifrjóvgun en löggjöf um ættleiðingar barna hjá einstaklingum var samþykkt nokkrum árum áður. Fyrir það voru konur oftar en ekki að leita til Danmörku í tæknifrjóvgun sem gerði ferlið töluvert flóknara því vanalega þurfa konur að fara oftar en einu sinni í meðferðina. Við erum komin langt frá þessu í dag en nýtum okkur samt sem áður vinatengsl Dana og fáum sæðið úr stórum banka þaðan. Banki þessi er gríðarstór gagnagrunnur þar sem konur notast við ákveðnar síur til að finna réttan gjafa. Sjúkrasaga gjafans og fjölskyldu hans er aðgengileg sem og persónulegri upplýsingar og útlit. Ljóshærður, brún augu, hávaxinn og þar fram eftir götunum.

Þetta ferli virkar mögulega einkennilega á marga, en er það ?

Fólk í sambandi velur sér maka útfrá ýmiskonar ástæðum og margt spilar inní. Útlit og persónuleiki spilar stórt hlutverk og þar af leiðandi ekkert eðlilegra en að vilja vita hvernig frumu þú berð sem mun vaxa í barnið sem verður þér samferða út lífið.

 

Í þættinum Magasín í kvöld koma tvær konur sem eru meðlimir í félagi Einstakra mæðra. Ragnheiður Anna Þorsteinsdóttir sem á 6 ára dóttur og Karen Ösp Randversdóttir gengin 25 vikur á leið af stúlkubarni. Þær segja frá sinni ákvörðun að verða einstök móðir og áhrifum sem þessi ákvörðun hefur haft á umhverfið sitt.

\"\"

Snæ