Einstæð fjórröddun alþýðufólks

 

 

Sagt hefur verið um Mývetninga að þeir fæðist með þann hæfileika að syngja fjórraddað.

Sé sá vandi einn þeirra í millum að velja einn til að stjórna söng á mannamótum. Hitt geri sig sjálfkrafa.

Í gærkvöld fór fram vegleg afmælishátíð í félagsheimili Mývatnssveitar, sjálfri Skjólbrekku. Skjólbrekka hefur í 60 ár gegnt sínu hlutverki sem leikfimihús, leikhús, tónleikastaður, verið vettvangur ýmissa annarra skemmtana og var ekki síst fægur ballstaður á árum áður.

Eins og vera ber risu Mývetningar úr sætum sínum og sungu eigin „þjóðsöng“, Blessuð sértu sveitin mín. Ekki er um eiginlegan kór að ræða heldur mývetnska alþýðu, upptöku af söngnum má sjá hér.

Bjarni Jónsson á heiður af myndbandinu.