Einslet leiðtogaefni í bretlandi

Athygli hefur vakið að allir leiðtogar stjórnmálaflokkanna í Bretlandi eru á aldursbilinu 44-51 árs.  Hildur Helga Sigurðardóttir blaðamaður, sem var fréttaritari RÚV í Bretlandi um árabil, sagði í Heimsljósi í gær þá David Cameron formann Íhaldsflokksins, Ed Milibrand formann Verkamannaflokksins og John Clegg formenn Frjálslyndra demókrata svo keimlíka að það hafi tekið hana langan tíma að þekkja þá í sundur.


Ólafur Þ. Harðarson stjórnmálafræðingur sem nam í Bretlandi sagði Hildi Helgu haldna fortíðarþrá eftir Harold Wilson og hans líkum.  Hún vísaði því alfarið á bug að hún væri á þeim aldri þó þeir væru mögulega samtíðarmenn Ólafs. 


Þau Ólafur og Hildur Helga krufðu breskt kosningakerfi og hefðir í Heimsljósþætti gærkvöldsins, og skyggndust inn í breska þjóðarsál.  Þau töldu þó litla hættu á því að hin nýja prinsessa, Karlotta Elísabet Díana, myndi hafa áhrif á niðurstöðu kosninganna, þó svo að mögulegt væri að einhverjir konungssinnar sæju sig knúna til að mæta á kjörstað í hrifningarvímu líkt og eftir góðan landsleik.


Mikil spenna er á kjördegi í Bretlandi og allt eins útlit fyrir að kjósa þurfi aftur sakir þess að enginn flokkur nái afgerandi umboði til myndunar nýrrar stjórnar.