Eins og útlendingur í eigin landi

Ómar Þ. Ragnarsson segir að daðrið við enskuna gangi of langt þegar hún er notuð að þarflausu eða þegar slakað er á sjálfsögðum kröfum til notkunar og meðferðar íslensku, sem ætti að njóta sérstakrar verndar hér innanlands í stjórnarskrá okkar.

Þess hugvekju hans má lesa í nýjum pistli hans á blog.is í gær, á Degi íslenskrar tungu, en þar segir hann að með auknum ferðamannastraumi verði æ algengara að ekki sé hægt að notast við íslensku á stöðum þar sem margir ferðamenn eru, svo sem á hótelum og veitingastöðum.

\"Hvað eftir annað kom það fyrir í sumar þegar ég hringdi í hótel í Reykjavík, að afgreiðslumaður í gestamóttöku krafðist þess af mér að ég talaði ensku, af því að hann talaði ekki íslensku,\" skrifar Ómar og bætir við: \"Mér fannst ég vera orðinn útlendingur í eigin landi.\"

Hann segir að ekki sé hægt að ímynda sér að starfsfólk í gestamóttöku í Frakklandi sem kunni ekki frönsku. Eða að starfsfólk í gestamóttöku í Þýskalandi kunni ekki þýsku.