Eins og krakkar í sælgætisbúð

Vigdís Hauksdóttir formaður fjárlaganefndar segir stjórnendur Isavia haga sér eins og smákrakka í sælgætisbúð. Hún kveðst á nýrri Facebook-færslu lengi hafa efast um opinbert hlutafélagsform á ríkisfyrirtækjum; "það virðist vera sama steypan í rekstri Isavia og Íslandspósts," segir hún. 


Með þessum hvössu orðum er Vigdís að bregðast við fréttum þess efnis að forstjóri Isavia hafi margsinnis látið ríkisfyrirtæki greiða fyrir utanlandsferðir konu sinnar, þvert á reglur félagsins og athugasemdir Ríkisendurskoðunar. Þá hefur einnig komið í ljós að greiðslur til stjórnarmanna Isavia eru vel ríflega yfir því sem þekkist meðal annarra stjórna ríkisfyrirtækja. Loks er skemmst að minnast árshátíðar Isavia sem kostaði 16 milljónir króna. "...og svo er sagt við fjárveitingavaldið - ykkur kemur þetta ekki við," skrifar Vigdís Hauksson undir lokin í færslu sinni.


Samkvæmt heimildum hringbrautar.is er þingflokkur Framsóknarflokksins sama sinnis og Vigdís í þessum efnum og mun vera vilji innan hans að taka til í ranni Isavia og afmá þann spillingarstimpil sem virðist vera að festast við þetta opinbera hlutafélag.