Breski grínistinn John Oliver hefur sett saman innslag sem sýnt hefur verið víða um heim þar sem meginuppistaðan eru viðbrögð Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar í viðtali þegar hann var fyrst spurður út í Wintris-félag sitt.
\"Holy shit,\" þetta er eins og að fylgjast með bílslysi sem sýnt er hægt,\" segir þáttastjórnandi um viðbrögð Sigmundar Davíðs þegar sænski rannsóknarblaðamaðurinn afhjúpar hann.
Einnig eru sýndar myndir af reiðum mótmælendum sem köstuðu eggjum og banönum að þinghúsinu við Austurvöll.
Skoða má innslag Johns Olivers hér.