Eins gott að vera nagli í sundinu!

Ragnheiður Runólfsdóttir, margfaldur Ólympíufari og ein helsta sunddrottning Íslands, birti á facebook í gær skemmtilega mynd úr Sundlauginni á Akureyri þar sem jafnfallinn snjór næturinnar sést berlega á stökkpöllum sundfólks við æfingalaug Sundlaugar Akureyrar.

„Kannski að æfa stört í dag?“ Spyr Ragga eins og hún er kölluð í sundheiminum og lætur broskarl fylgja.

Gríðarsnjór er nú á Akureyri og hefur kyngt niður síðasta sólarhring.

Í ummælum við færslu Röggu má m.a. lesa að það sé eins gott að sundiðkendur norðan heiða séu dálitlir naglar, að starfa við þessar aðstæður...