Eina fyrirtækið á Íslandi sem býður upp á tækni- eða glasafrjóvganir, er fyrirtækið Art Medica, en að sögn viðskiptavina þess hefur það í för með sér mikið óhagræði og kostnað fyrir þá að alla samkeppni skorti á þessu sviði.
Silja Hlín Guðbjörnsdóttir er ein þeirra sem hefur verið í ferli glasafrjóvgunar síðastliðin tvö ár, en hún sagði sögu sína í upplýsingaþættinum Ég bara spyr á Hringbraut í gærkvöld, en þar gefst fólki tækifæri til að fá svör við spurningum sínum. Silja Hlín segir glasafrjógvun mjög kostnaðarsama og hér vanti sárlega samkeppni.
Á meðan eigendur Art Medica greiði sér tugi milljóna í arð, sé búnaður og tæki hjá fyrirtækinu ekki eins og best væri á kosið og hér vanti því samkeppni. Sjálf hefur Silja og eiginkona hennar, reitt fram um milljón krónur fyrir þá tilraun að reyna að eignast barn saman. Draumurinn er að Silja gangi með barn eiginkonu sinnar. Þessi valkostur er leyfður á Íslandi en ekki alls staðar annars staðar.
Að sögn Silju, kjósi til dæmis mörg pör að fara til Prag og undirgangast tækni- eða glasafrjóvgun þar, því mikill munur er á kostnaði. Í tilfelli Silju, var það hins vegar ekki hægt, því þar er samkynhneigðum konum ekki leyft að fá egg til frjóvgunar, frá maka sínum.