Í umsögn borgarlögmanns um tillöguna segir að megintilgangur atkvæðagreiðslunnar væri að fá fram niðurstöðu sem síðan mætti nota í framhaldinu sem forsendu fyrir því að svipta borgina skipulagsvaldi yfir flugvellinum. Hann leggðist því eindregið gegn því að tillagan verði samþykkt.
Meirihlutinn greiddi atkvæði með umsögninni og það gerði Hildur Björnsdóttir, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins einnig. Marta Guðjónsdóttir, flokkssystir hennar, greiddi hins vegar atkvæði gegn umsögninni og segir í bókun sinni að það „geti ekki talist réttlætanlegt að einungis 23 borgarfulltrúar taki endanlega ákvörðun í þessu mikilvæga máli sem snertir ekki bara borgina heldur alla landsbyggðina.“ Þetta sé eitt stærsta hagsmunamál borgarbúa og þjóðarinnar allrar.
http://www.ruv.is/frett/einn-var-med-annar-a-moti-en-thridji-sat-hja