Ríflega 300 manns leituðu til Stígamóta á síðasta ári vegna kynferðisofbeldis. Þetta segir Guðrún Jónsdóttir, talsmaður Stígamóta. Guðrún verður í ítarlegu viðtali í fréttaþættinum Kvikunni á Hringbraut í kvöld.
Kynbundið ofbeldi verður til umræðu í Kvikunni en Guðrún ræðir einhver mestu mein íslensks samfélags ásamt Sigþrúði Guðmundsdóttur, framkvæmdastýru Kvennatafhvarfsins. Í Kvennaathvarfinu var einnig meira annríki á árinu 2015 en verið hefur. Verður í þættinum leitast við að greina orsakir þesssa mikla vanda sem ofbeldi er meðal landsmanna og þá ekki síður hvernig réttarkerfið virðist ítrekað bregðast þolendum eins og mikil umræða var um undir lok síðasta árs, ekki síst í svokölluðu Hlíðamáli.
„Staðan er gjörsamlega óviðunandi. Það er eins og réttarkerfið sé búið til í allt öðrum veruleika en fólkið okkar lifir í,“ segir Guðrún í þættinum.
Að 300 manns hafi á árinu leitað til Stígamóta, næstum einn á hverjum degi að meðaltali og allmargir dvalið í Kvennathvarfinu, jafnvel um jólin, er þyngra en tárum taki, að sögn Guðrúnar og Sigþrúðar.
Guðrún segir að það skipti mjög miklu máli að fólk kæri strax alvarlegar nauðganir. Í raunveruleikanum séu aðstæður oft þannig að það sé útilokað en réttarkerfið geri eigi að síðður ráð fyrir að þolendur hafi getu og tækifæri til að bregðast við og leita réttar síns nánast samstundis eftir einhver verstu áföll sem fólk geti orðið fyrir. Það sé eitt af því sem sé verulega umhugsunarvert.
Kvikan verður sýnd klukkan 21.30 í kvöld.