Ritstjóri rekinn til að koma öðrum að?

„Ég held að punkturinn sé frekar sá að sá fyrri var REKINN til að koma hinum að,“ skrifar Stefán Jón Hafstein sem orðaður hefur verið við forsetaframboð í svari til Ólafs Arnarsonar á fésbók.

Ólafur tengir í færslu sinni við frétt Stundarinnar um ritstjóraskipti hjá Reykjavík vikublaði. Í gær var greint frá því að félag Björns Inga Hrafnssonar væri búið að ráða Björn Jón Bragason sem nýjan ritstjóra hjá Reykjavík vikublaði. Blaðið hefur ekki komið út síðan í júlí, ekki frekar en mörg önnur blöð á vegum Fótspors, sem Björn Ingi Hrafnsson keypti í sumar af Fótspori. Áður var Ingimar Karl Helgason, varaþingmaður VG, ritstjóri hjá Reykjavík vikublaði. Nýi ritstjórinn situr í miðstjórn Sjálfstæðisflokksins þannig að vænta má þess að skilin á ritstjórnarstefnu verði nokkuð skörp – en Reykjavík vikublað er fríblað sem dreift er inn á heimili í Reykjavík og styttist í kosningar.

Ólafur spyr á þræði sínum: „Flokkast það ekki undir fordóma og pólitíska rétthugsun þegar það er í góðu lagi að félagi og prófkjörskandidat úr VG ritstýri vikuriti en allt verður vitlaust þegar félagi og prófkjörskandidat úr Sjálfstæðisflokknum er ráðinn til að ritstýra sama riti?“

Við þessu bregst Stefán Jón og skrifar: „Ég held að punkturinn sé frekar sá að sá fyrri var REKINN til að koma hinum að.“

Ólafur spyr þá hvort menn haldi því fram að eigendur fjölmiðla megi ekki ráða því hverjir ritstýra þeim.

„Ég minni á að það er enginn fjölmiðill hlutlaus og enginn maður, hvorki blaðamenn né aðrir, er hlutlaus, því öll höfum við skoðanir og lífssýn sem mótar afstöðu okkar til mála,“ skrifar Ólafur Arnarson einnfremur á fésbókarþráð sinn í líflegri umræðu um ritstjóra og blaðamennsku.