Eðlilega fékk Bjarni Benediktsson að tala lengur en aðrir í sjónvarpsumræðunum í gærkvöld. Hann var eini ráðherrann og auk hans voru í þættinum ellefu aðrir þátttakendur.
Einn þeirra er fyrrverandi forsætisráðherra, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, sem vafi leikur á um hvort er stuðningsmaður núverandi ríkisstjórnar eða ekki. Varaformaður flokks Sigmundar Davíðs er vissulega forsætisráðherra, en eigi að síður er ekki ljóst hvort Sigmundur Davíð styðji ríkisstjórnina.
Hann hafði orð á að eitt og annað hefði þurft að klárast og það hefði gerst að óbreyttu. Það er hefði hann verið í fyrri stöðu. Ekki er að sjá eða heyra að Sigmundur Davíð sé einlægur stuðningsmaður ríkisstjórnar Sigurðar Inga Jóhannsson, varaformanns Framsóknarflokksins.
Vont er að meta frammistöðu annarra. Sumir misstigu sig í frumraunum sínum. Aðrir ekki.
-sme