Einn milljarður punda

Hlutabréfaútboð Bakkavarar gæti orðið upp á 137 milljarða króna. Þetta er upphæð sem nemur einum milljarði punda. Fjármálastofnanir á borð við Barcleys og Citigroup ásamt Rabobank og Morgan Stanley koma að útboðinu.

Frá þessu er sagt í breska blaðinu The Telegraph og í Viðskiptablaðinu.

Upphaf og vöxtur félagsins er rakin. Nú er Bakkavör eitt umfangsmesta félag í framleiðslu tilbúinna rétta á Stóra-Bretlandi.

Þetta útboð verður Bakkavör mikilvæg lyftistöng en félagið var stofnað fyrir 31 ári af þeim bræðrum Ágústi Guðmundssyni og Lýð Guðmundssyni.

 

 

Nánar www.telegraph.com  www.vv.is  www.bakkavor.com

[email protected]