John Dowd, einn lögmanna Donalds Trumps í Rússarannsókn Roberts Muellers sérstaks saksóknara, hefur sagt af sér.
Orðrómur um að verið væri að stokka enn frekar upp í lögmannaliði forsetans hefur mallað alla vikuna. Afsögnin kemur aðeins nokkrum dögum eftir að Dowd kallaði eftir því að rannsókn Muellers yrði hætt.
„John Dowd hefur verið okkur mikils virði sem liðsmaður lögfræðiteymisins og við munum halda áfram að vinna með embætti saksóknarans að þessa rannsókn,“ sagði Jay Sekulow annar meðlimur teymisins í yfirlýsingu.
Fyrr í vikunni bættist í teymi Trumps Joseph diGenova sem er fyrrum alríkissaksóknari og sagður harður í horn að taka. Áður hafði verið haft eftir honum að Dómsmálaráðuneytið og FBI væru að sækja mál út af tilbúnum glæp.