Roskinn karlmaður lést í bílslysi á Suðurlandsvegi, á móts við bæinn Gunnarshólma, í gærkvöld en þjóðleiðin austur fyrir fjall var nánast lokuð um tveggja klukkustunda skeið af völdum slyssins.
Um tveggja bíla árekstur var að ræða. Þrennt var í bílunum og voru öll flutt á slysadeild þar sem maðurinn var úrskurðaður látinn. Meiðsli hinna tveggja eru ekki talin alvarleg.
Alls hafa þrettán látist í umferðinni það sem af er ári. Í fyrra létust fjórir.