Einn lát­inn eft­ir bíl­velt­u við Ör­lygs­hafn­ar­veg á Vest­fjörð­um

Einn er látinn eftir bílveltu við Ör­lygs­hafnar­veg á Vest­fjörðum skammt frá Látra­vatni. Þetta kemur fram í til­kynningu á Facebook frá lög­reglunni á Vest­fjörðum.

Um klukkan 10:13 í morgun kom veg­farandi að bif­reið sem hafði oltið út af Ör­lygs­hafnar­vegi, skammt frá Látra­vatni. Öku­maður, sem var ein­samall í bif­reiðinni, reyndist látinn.

Sam­kvæmt til­kynningu lög­reglunnar virðist sem bif­reiðin hafi runnið út af veginum og oltið að minnsta kosti eina veltu þar til hún stað­næmdist.

Lög­regla, sjúkra- og slökkvi­liðs­menn voru kölluð á vett­vang frá Pat­reks­firði og beita þurfti klippum og öðrum búnaði til að losa öku­mann úr bíl­flakinu.

Til­drög slyssins eru til rann­sóknar hjá lög­reglunni á Vest­fjörðum en einnig er aðili frá rann­sóknar­nefnd sam­göngu­slysa á vett­vangi.

Fjöl­skyldu hins látna hefur verið til­kynnt um slysið og sam­kvæmt lög­reglu stendur rann­sókn yfir og því ekki tíma­bært að fjalla nánar um það að svo stöddu.