Alvarlegt umferðarslys sem varð á Snæfellsvegi um 13:00 leitið í gær eftir að ökumaður bifreiðar missti stjórn á henni hefur verið til rannsóknar hjá rannsóknardeild lögreglunnar á Vesturlandi.
Fimm erlendir ferðamenn slösuðust og þar af tveir mjög alvarlega. Lögreglan hefur nú úrskurðað einn farþega í bifreiðinni látinn.
Bifreiðin sem fór út af veginum þegar ökumaðurinn missti stjórn á bílnum valt nokkrar veltur og endaði á hliðinni. Rannsókn á tildrögum slyssins stendur enn yfir.