Einn fallegasti golfvöllur landsins

Þátturinn Atvinnulífið er á dagksrá Hringbrautar kl. 20.00 í kvöld en þá verður Golfklúbburinn Oddur heimsóttur og áhorfendur fá að fræðast nánar um starfsemina en klúbburinn var upphaflega stofnaður 1992.  Rætt verður við Þorvald Þorsteinsson framkv.stjóra og Elínu Hrönn Ólafsdóttur formann ásamt nokkrum kylfingum sem allir eru félagar í GO.  Mikil gróska er í starfseminni og félagar orðnir 1200.  Þáttastjórnandi er Sigurður K. Kolbeinsson og myndatökur annaðist Friðþjófur Helgason.