Einkennilegt tekjumynstur í bönkum

Í tekjublaði Frjálsrar verslunar vegna ársins 2014 kemur m.a. fram að launakjör stjórnenda banka eru afar misjöfn. Um einkennilegan mismun er þar að ræða enda eru starfskjör þeirra ekki í neinu samræmi við stærð og umfang bankanna.
 
Þannig er bankastjóri Landsbankans, sem er stærsti banki þjóðarinnar í sæti nr. 142 yfir starfsmenn fjármálafyrirtækja á listanum. Launatekjur hans á mánuði árið 2014 námu 1,6 m.kr. en bankastjórar hinna stóru bankanna voru með 4,6 m.kr. og 3,6 m.kr. Bankastjóri Arion banka var hæstur þeirra þriggja en sá banki er minnstur af þeim! Margir stjórnendur og millistjórnendur í Landsbankanum eru með talsvert hærri tekjur en Steinþór Pálsson bankastjóri.
 
Ástæða þessa mun vera sú að starfskjör bankastjóra Landsbankans eru ákveðin af Kjaradómi. Framangreindar upplýsingar sýna að það er fráleitt fyrirkomulag.