Einkavæðing bankanna

Bjarni Benediktsson forsætisráðherra sagði í Speglinum í gær að ekki væri aðkallandi að skoða einkavæðingu bankanna enn frekar. Bjarni sagði þó að gæti einhver bent honum á þætti í þessum málum sem skynsamlegt væri að frá ofan í enn frekar væri hann fyrirfram ekki á móti slíku.

Hann sagði jafnframt að búið væri að skoða málin margoft og nægilega vel að hans mati. Upplýsingarnar um sölu Búnaðarbankans væru dapurlegar sagði Bjarni. Ljóst væri að sjÓ leikur hefði verið sviðsettur til að gefa til kynna að kaupendur  og nýjir eigendur Búnaðarbankans væru í sérlega traustri stöðu.