Einkarekstur

Nýr formaður SA-Samtaka atvinnulífsins Eyjólfur Árni Rafnsson kallar eftir því að í heilbrigðiskerfinu verði einkarekstur nýttur í ríkari mæli. Þetta yrði gert til þess að bæta þjónustuna og lækka kostnað og stytta biðtíma eftir aðgerðir fyrir sjúklinga.

Eyjólfur Árni segir að það hafi gefið góða raun hér á landi að semja um einkarekstur í heilbriðisþjónstunni. Hann minnir á að Heilsugæslan í Salahverfi er til að mynda einkarekin og að rekstur þarna gangi vel. Góð þjónusta sé veitt sjúklingum og hið opinbera sparar fé.

\"Þessu er ekki haldið til haga í nógu miklum mæli  í opinberri umræður\" segir Eyjólfur Árni ítarlegu viðtali í dag við ViðskiptaMoggann.

Nánar www.mbl.is