Einkarekstur í heilsugæslu er ekki einkavæðing

Arna Guðmundsdóttir, formaður Læknafélags Reykjavíkur skrifar í nýjum pistli í Læknablaðið að í umræða um heilbrigðismál sé upphrópanakennd, t.d. þegar kemur að  eflingu heilsugæslunnar og þróun í átt til aukins einkareksturs í heilbrigðisþjónustunni.

Arna skrifar: „Mér er fyrirmunað að skilja hvers vegna þeir stjórnmálamenn sem andsnúnir eru slíku rekstrarfyrirkomulagi leyfa sér til dæmis endalausar tilraunir til að setja samasemmerki á milli einkareksturs og einkavæðingar. Ég þekki engan Íslending og ennþá síður lækni sem vill hverfa frá því sterka kerfi almannatrygginga og um leið þeim jöfnuði sem einkennir íslenska heilbrigðisþjónustu. Ég þekki hins vegar marga, og er ein af þeim sjálf, sem telja ólík rekstrarform undir sameiginlegum hatti almannatrygginga og ríkisrekinnar heilbrigðisþjónustu af hinu góða. Einkarekstur er eitt þeirra“.

Þá segir Arna einnig að einkavæðing komist hins vegar ekki undir þann hatt samkvæmt skilgreiningu fjármálaráðuneytisins á hugtakinu. Svo einfalt sé það.

Arna segir að heilbrigðismál hljóti að verða ofarlega í hugum stjórnmálamanna í aðdraganda kosninganna nú í október.

Þá gagnrýnir Arna harðlega þá sem segja að stíga verði varlega til jarðar, svo þensla í ríkisútgjöldum aukist ekki og verðbólga gjósi upp. Hún bendir á að á meðan biðlistar eftir þjónustu eru langir, á meðan hjúkrunarrýmisþjónustu við aldraða er verulega ábótavant og á meðan greiðsluþátttaka almennings er langt umfram eðlileg mörk þá sé engin afsökun til fyrir því að bretta ekki upp ermar, eins og hún orðar það. Hún bendir á að engin ástæða sé þó til að leggja til gjaldfrjálsa þjónustu eins og sum stjórnmálaöfl hafa þegar freistast til að lofa. Eðlileg og hófstillt gjaldtaka með þaki á heildarútgjöldum einstaklinga er það sem þarf, segir hún.