Staða einkarekinna fjölmiðla á Íslandi hefur aldrei verið verri að mati þeirra Jóns Kaldals, fyrrverandi ritstjóra Fréttablaðsins og Þóru Tómasdóttur, fyrrverandi ritstjóra Fréttatímans sáluga sem eru gestir Sigmundar Ernis í Ritstjóraþætti vikunnar, en þáttinn má nú sjá hér á vef stöðvarinnar.
Og raunar hefur ójafnvægið á milli ríkismiðilsins og frjálsu stöðvanna aldrei verið jafn áberandi - og kemur þar til óskoraður aðgangur RÚV að auglýsinga- og kostunarmarkaði, að mati Jón Kaldals, en hann bendir á að þótt Sjálfstæðisflokkurinn hafi ráðið málefnum RÚV svo gott sem allar götur frá því edinokun þess var afnumin hafi hann ekkert gert í frjálsræðisátt, eins og hann þó boðar - og raunar megi þakka vinstrkonunni Katrínu Jakobsdóttur, á meðan hún var ráðherra menntamála, þá litlu breytingu sem orðið hafi á málaflokknum, einkareknum stöðvum í vil.
Þau segja þó bæði að fréttaþjónusta ríkisins sé afar mikilvæg og megi ekki missa sín - og Þóra heldur því til haga að RÚV muni ávallt vera mikilvægt á fjölmiðlamarkaði í ljósi hættunnar á því að einkareknir fjölmiðlar séu misnotaðir af hagsmunatengdum eigendum sínum, svo sem dæmi sanni á síðustu misserum. En það er klárlega vitlaust gefið á þessu sviði samfélagsins - og í raun furðulegt að ríkisvaldið styðji aðeins einn fjölmiðil í landinu en láti aðra algerlega afskiptalausa. Hér sé enda mikið í húfi; lýðræðisleg umræða, aðhaldshlutverkið og rækt við íslenska tungu.
Meðal annarra umræðuefna er misheppnuð kaldhæðni fjármálaráðherra á Alþingi í gærdag, baráttan gegn ólyfjaninni á íslenskum skemmtistöðum, kvótasenan á Skaganum og spurningin hvort Íslendingar kunni ekki að semja Evróvisjón-lög.
Ritstjórarnir eru frumsýndir öll þriðjudagskvöld klukkan 21:00.