Einkarekinn lánasjóður leysi lín af?

\"Það er varla tilviljun að nú á að herða reglur hjá LÍN skömmu eftir að einkarekinn námslánasjóður er stofnaður. Eyðileggjum almannaþjónustuna og greiðum leið fyrir einkarekstur!\"

Þetta segir Logi Einarsson, oddviti Samfyllkingarinnar og bæjarfulltrúi á Akureyri. Hann skrifar tilvitnuð orð á facebook og deilir með upplýsingum um það sem hann kallar nýjan einkarekinn námslánasjóð. Færsluna skrifar Logi vegna frétta um 20% skerðingu námslána hjá þeim sem læra utan landsteinanna. Fulltrúar námsmanna hafa kallað eftir rökstuðningi og skýringum hjá Illuga Gunnarssyni menntamálaráðherra en ekki fengið að þeirra sögn.

Á vefsíðunni framtidin.is má lesa um lánskjör fyrir þá sem vilja ekki treysta á LÍN heldur skipta við einkaframtakið fyrir nám í útlöndum. Þar er farið fram á
3,95% lántökugjald. Vextir eru mun hærri en hjá LÍN.

Námslán Framtíðarinnar eru jafngreiðslulán (annuitet) með allt að 12 ára endurgreiðslutímabili, sem hefst 6 mánuðum eftir námslok. Óverðtryggðir vextir verða 10,25% 11,25% eða verðtryggðir vextir 7,25% 8,25% eftir aðstæðum.

Í sýnidæmi svokölluðu á síðunni sést að sá/sú sem tekur óverðtryggt framfærslulán ,1.049.000 krónur, á námstíma borgar 39.500 kr. í lántökugjald og í skjalagerð: 9.500 kr. Miðað við 12 mánaða endurgreiðslutímabil er fyrsta greiðsla 6 mánuðum eftir námslok: 14.440 kr. Samtals greiðir námsmaðurinn 2.047.803 krónur sem þýðir á mannamáli að ein milljón í námslán kostar í tilteknu tilviki um 2 milljónir króna.

Lénið framtidin.is er í eigu Gamma, Capital Management hf.