Atvinnulífið verður á dagskrá Hringbrautar kl. 20.00 í kvöld en þættirnir sem áður voru í reglulegri dagskrá Hringbrautar á árunum 2015-2018 verða á dagskrá annað slagið í vetur.
Í kvöld heimsækir þáttastjórnandinn Sigurður K. Kolbeinsson fyrirtækið Klínikuna í Ármúla 9 sem er einkarekin heilbrigðisþjónusta þar sem nokkrir af færustu skurðlæknum landsins eru að störfum við hinar ýmsu aðgerðir.
Í þessum fyrsta þætti af þremur verður rætt við Hjálmar Þorsteinsson sérfræðing í bæklunarskurðlækningum um liðskiptaðagerðir sem færast mikið í vöxt m.a. vegna aukinnar tækni við þær. Hins vegar er það svo að biðlistar hjá Landspítala eru langir og þó svo að hægt sé að framkvæma nákvæmlega sömu aðgerðir hjá Klínikunni hafa Sjúkratryggingar Íslands enn ekki samið við Klínikuna um greiðslu fyrir aðgerðir sjúklinga og mega þeir því þola að greiða þær úr eigin vasa.
Hjá Klínikunni eru fullkomnar skurðstofur og öll aðstaða fyrir sjúklinga á legudeild til mikillar fyrirmyndar. Auk Hjálmars verður rætt við starfsfólk Klínikunnar auk sjúklinga sem leitað hafa sér aðstoðar hjá Klínikunni og segja álit sitt á þjónustunni. Í næstu viku verður svo fjallað um efnaskiptaaðgerðir eða offituaðgerðir eins og þær eru stundum kallaðar. Kvikmyndataka og myndvinnsla var í höndum Friðþjófs Helgasonar.